Mánaðarplan án skuldbindingar
• Byrjunarviðtal 1:1 (45-60 mín)
Við ræðum þína stöðu, markmið og fyrstu skrefin. Þú færð strax skýra stefnu og plan sem byggir á því hvar þú ert stödd/staddur. Viðtöl fara fram í myndsamtölum.
• Regluleg check-in
Vikuleg innritun í gegnum tölvupóst eða skilaboð , þar sem ég spyr hvernig gengur, styð þig svo þú finnir að þú ert ekki ein/n í þessu.
• Eftirfylgdarviðtal 1:1 (45-60 mín) - 2 vikum seinna
Við förum yfir hvernig þér hefur gengið, hvaða breytingar hafa átt sér stað og stillum planið eftir þínum þörfum.
• Samskipti & stuðningur þegar þú þarft á því að halda
Þú getur sent mér spurningar og ég svara innan ákveðins tímafrests. Ég er þinn stuðningur þegar þú þarft.
• Aðgangur að hnitmiðuðum fræðslu-bæklingum
Efni sem hjálpar þér að skilja hvað gerist í líkamanum og huganum þegar sambandi við mat er óheilbrigt, hvernig við snúum því við saman og finnum sjálfstraust og frelsi.
• Hagnýt verkfæri og æfingar
Stuttar æfingar sem við förum í saman (í fyrstu samtölunum og svo sjálfstætt hjá þér) sem styrkja:
– Hugsanamynstur
– Sjálfsvirðingu
– Skynjun á hungri og seddutilfinningu
– Þitt samband við mat, líkama og reglur í kringum mat
• Hugrænar æfingar til að breyta gamalli hugsun
Við vinnum markvisst með “allt eða ekkert” hugsun, að flokka mat í “góðan eða slæman.”
• Traustur stuðningur frá manneskju sem hefur sjálf farið í gegnum þetta
Ég skil ferlið, ég þekki erfiðleikanna og ég kenni þér þau tæki og tól sem hjálpuðu mér að ná fullum bata.
Allar upplýsingar sem þú deilir í viðtölum, skilaboðum og í öllu okkar samstarfi eru meðhöndlaðar í fyllsta trúnaði.
Nafn þitt, aðstæður og allt sem þú treystir mér fyrir verður aldrei deilt með þriðja aðila.
Þitt rými hér er öruggt, persónulegt og byggt á virðingu, næði og trausti.