Tengir þú við eitthvað af þessum punktum?
Þú upplifir að sambandið við mat sé orðið flókið og þreytandi
Þú ert með “bannaðan mat” í hausnum og finnst erfitt að borða ákveðna hluti án samviskubits
Þú finnur fyrir kvíða og/eða ofhugsunum þegar matur er í miklu framboði, t.d. í veislum eða boðum
Þú ert orðin/nn þreytt á hringnum: byrja „hreint“, detta út, byrja aftur, og finnst þú vera föst/fastur
Þú ert dugleg/ur að reyna en vantar leiðsögn sem virkar, er raunveruleg og laus við öfgar
Þú vilt losna undan hugsunarhætti sem byggir á „megrunarmenningu“ (diet culture) og fá frelsi í kringum mat
Þú vilt hætta að flokka mat í „góður/slæmur“ og læra að treysta líkamanum og þínum eigin þörfum
Þú vilt fá aftur tenginguna við náttúrulega svengdar- og seddutilfinningu og leyfa líkamanum að finna jafnvægið sem hann þarf miðað við þitt hreyfinga álag
Þér finnst ótti eða kvíði fylgja mörgum máltíðum og matur verður oft stress frekar en næring.
Þú forðast ákveðin matvæli sem þér fannst áður góð en eru stimpluð sem "óholl" núna
Þú vilt finna frelsið í kringum mat. Getað einbeitt þér að mikilvægum hlutum í lífinu án þess að matur taki of mikið pláss í huganum.