• Byrjunarviðtal (45–60 mín)
Við ræðum þína stöðu, markmið og fyrstu skrefin. Þú færð strax skýra stefnu og plan sem byggir á því hvar þú ert stödd/staddur.
• Eftirfylgdarviðtal (45-60 mín.) – 2 vikum síðar
Við förum yfir hvernig þér hefur gengið, hvaða breytingar hafa átt sér stað og stillum planið eftir þínum þörfum. Í hverjum mánuði eru tvö 1:1 viðtöl fyrir besta árángurinn.
• Persónuleg leiðsögn alla þrjá mánuðina
Ég leiði þig í gegnum ferlið skref fyrir skref þannig að þú upplifir að þú sért aldrei ein/n í þessu.
• Regluleg check-in
Vikuleg innritun í gegnum tölvupóst eða skilaboð – þar sem ég spyr hvernig gengur, styð þig og hjálpa þér með hvað sem er.
• Samskipti & stuðningur þegar þú þarft á því að halda
Þú getur sent mér spurningar og ég svara innan ákveðins tímafrests. Ég er þinn stuðningur þegar þú þarft.
• Aðgangur að hnitmiðuðum og sérhæfðum bæklingum, hannaðir bæði fyrir íþróttafólk og þá sem stunda ekki íþróttir
Efni sem hjálpar þér að skilja hvað gerist í líkamanum og huganum þegar sambandi við mat er óheilbrigt og hvernig við snúum því við.
• Hagnýt verkfæri og æfingar
Stuttar æfingar sem styrkja:
– Hugsanamynstur
– Sjálfsvirðingu
– Skynjun á hungri og seddutilfinningu
– Þitt samband við mat, líkama og reglur í kringum mat
• Hugrænar æfingar til að breyta gamalli hugsun
Við vinnum markvisst með “allt eða ekkert” hugsun og vinnum í að flokka ekki mat sem “góðan eða slæman”.
• Plan sem er aðlagað að þér
Engar harðar reglur, heldur lífstíll sem byggist á jafnvægi og öryggi.
• Traustur stuðningur frá manneskju sem hefur sjálf farið í gegnum þetta
Ég skil ferlið, ég þekki erfiðleikanna og ég kenni þér þau tæki og tól sem hjálpuðu mér að ná bata.
• Markmið eftir 3 mánuði
Betri stjórn, meiri ró, skýrari hugsun, sterkara sjálfstraust og nýtt samband við mat sem er byggt á frelsi en ekki ótta.
Allar upplýsingar sem þú deilir í viðtölum, skilaboðum og í öllu okkar samstarfi eru meðhöndlaðar í fyllsta trúnaði.
Nafn þitt, aðstæður og allt sem þú treystir mér fyrir verður aldrei deilt með þriðja aðila.
Þitt rými hér er öruggt, persónulegt og byggt á virðingu, næði og trausti.